Fotbolti.net
28.06.06 - 06:53
Magnús Már Einarsson

Bodipo til Deportivo La Coruna (Staðfest)

Bodipo til Deportivo La Coruna (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Deportivo La Coruna hefur fengið framherjann Rodolfo Bodipo frá liði Alaves sem féll úr La Liga á Spáni á nýliðnu tímabili og er talið að kaupverðið sé um tvær milljónir evra.
Bodipo sem er 28 ára kemur frá Gíneu en hann gerði fimm ára samning við Depor. Alls skoraði þessi knái leikmaður átta mörk í La Liga á síðustu leiktíð en hann hefur einnig leikið með Racing Santander og Recreativo Huelva á Spáni.

Depor sem endaði í áttunda sæti í La Liga á síðustu leiktíð hefur með kaupunum á Bodipo fengið tvo framherja á um það bil viku en í síðustu viku kom Riki til félagsins frá Getafe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.