Fotbolti.net
28.06.06 - 15:29
Guðmundur Dagur Ólafsson

Tony Adams ráðinn til Portsmouth (Staðfest)

Tony Adams ráðinn til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hafa ráðið Tony Adams, fyrrum fyrirliða Arsenal, sem aðstoðarmann Harry Redknapp knattspyrnustjóra félagsins.
Hann tekur við hlutverki Kevin Bond en hann fór til Newcastle eftir síðasta tímabil. Adams, sem er 39 ára gamall, þjálfaði Wycombe Wanderers eftir að hann hætti að spila árið 2002 en hætti hjá þeim árið 2004.

"Tony getur gert frábæra hluti fyrir okkur hér því hann þekkir fótboltann inn og út. Ég hlakka mikið til að starfa með honum," sagði Redknapp við heimsíðu Portsmouth.

Fyrr í mánuðinum talaði Adams um hversu mikla virðingu hann bæri fyrir Redknapp: "Ég ber mikla virðingu fyrir Harry og ég myndi gjarnan vilja vinna með honum. Hann virðist vera heiðarlegur og það er það skiptir mig mestu máli í fari fólks."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.