28.06.06 - 19:35
Magnús Már Einarsson
Mark Schulte aftur til ÍBV (Staðfest)
Spilar með Eyjamönnum út árið 2007

Mynd: Guðni Freyr

Mynd: Guðni Freyr
Bandaríski varnarmaðurinn Mark Schulte mun ganga aftur til liðs við ÍBV á næstunni en þetta staðfesti Gísli Hjartarson stjórnarmaður hjá knattspyrnudeild félagsins í dag.
Hinn 28 ára gamli Schulte sem leikur í hægri bakverði skoraði eitt mark í átján leikjum fyrir ÍBV er liðið varð í öðru sæti í Landsbankadeildinni árið 2004. Hann gekk til liðs við Columbus Crew í heimalandinu og nú síðast lék hann með Montevideo Wanderers í Úrúgvæ. Schulte er nú á leið til heimalandsins þar sem hann mun síðan pakka niður og koma í kjölfarið til Íslands.
,, Hann hafði samband sjálfur og lýsti yfir áhuga á að koma hingað aftur að spila. Hann kemur því hingað á næstunni með það að markmiði að spila með okkur til loka árs 2007,” sagði Gísli við Fótbolti.net en Jonah Long og Andrew Mwesigwa munu að öllu óbreyttu leika áfram í Eyjum á næsta ári og þá er ÍBV að skoða tvo leikmenn í viðbót fyrir næsta tímabil.