Fotbolti.net
28.06.07 - 00:43
Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs til ÍBV (Staðfest)

Ian Jeffs í leik með ÍBV gegn Val.

Ian Jeffs í leik með ÍBV gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Englendingurinn Ian Jeffs er genginn til liðs við ÍBV á ný frá sænska liðinu Öregbro. Jeffs mun verða á láni hjá ÍBV út leiktíðina en þetta staðfesti Guðlaugur Tómasson umboðsmaður hans við Fótbolta.net í kvöld.
Jeff fór til Örebro frá ÍBV í mars í fyrra. Hann lék með Örebro þegar að liðið komst upp úr sænsku fyrstu deildinni í fyrra upp í efstu deild. Í ár hefur hann leikið tvo leiki í sænsku Allsvenskunni.

Jeffs sem gekk til liðs við ÍBV í maí 2003 frá enska liðinu Crewe Alexandra var lykilmaður hjá Eyjamönnum þau ár sem hann lék með liðinu.

Sumarið 2005 spilaði hann sautján leiki fyrir liðið í Landsbankadeildinni og skoraði tvö mörk þegar ÍBV bjargaði sér frá falli í síðustu umferð mótsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.