Fotbolti.net
28.06.07 - 12:59
Magnús Már Einarsson

Roy Makaay til Feyenoord (Staðfest)

Roy Makaay til Feyenoord (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Roy Makaay hefur yfirgefið Bayern Munchen og gengið til liðs við hollenska félagið Feyenoord en frá þessu greindi þýska félagið í dag.
Makaay sem er 32 ára gamall Hollendingur náði samningum við Feyenoord í gær og stóðst þá einnig læknisskoðun.

Makaay hefur verið í fjögur ár hjá Bayern Munchen en hann kom til félagsins frá Deportivo La Coruna árið 2003.

Á ferli sínum með Bayern Munchen skoraði hann 102 mörk í 178 leikjum, vann þýsku Bundesliguna tvívegis sem og þýska bikarinn.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.