Fotbolti.net
28.06.07 - 18:28
Hafliði Breiðfjörð

Marek Saganowski til Southampton (Staðfest)

Marek Saganowski.

Marek Saganowski.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hafa gengið frá kaupum á pólska framherjanum Marek Saganowski og gert við hann þriggja ára samning. Saganowski sem er 28 ára gamall kemur frá franska félaginu Troyes sem sagði nýlega að komist hafi verið að samkomulagi um 680 þúsund punda kaupverð.
Leicester, Watford og Burnley höfðu einnig áhuga á að fá þennan pólska leikmann til liðs við sig en hann var á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð.

,,Þetta hefur verið í vinnslu um nokkra stund en ég er hæstánægður með að búið er að ganga frá öllu," sagði George Burley stjóri liðsins í dag.

,,Hann er hörkuleikmaður sem sýndi gæði sín í lok síðustu leiktíðar."

Saganowski skoraði 10 mörk í 13 leikjum á meðan hann var á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.