Fotbolti.net
28.06.08 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Emmanuel Jorge Ledesma lánaður til QPR (Staðfest)

QPR fagna marki í vetur

QPR fagna marki í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Enska Championshipdeildar félagið Queen Park Rangers hafa fengið Emmanuel Jorge Ledesma, miðvallarleikmann Genóa á Ítalíu að láni út tímabilið.
Ledesma, sem er 20 ára gamall Argentínubúi var orðaður við fjölmörg lið í ítölsku deildinni, en það voru QPR sem náðu samningum við leikmanninn.

Hann kemur á láni út næsta tímabil, og fá QPR kauprétt á honum þar sem þeir gætu borgað 2,4 milljónir punda fyrir leikmanninn til að landa honum.

Ledesma mun ekki þurfa vegabréf þar sem hann er ítalskur ríkisborgari og getur því strax hafið æfingar með liðinu.

,,Hann getur skapað færi fyrir leikmenn og er með ótrúlega hæfileika. Hann getur spilað fyrir aftan sóknina og er með ótrúlegar sendingar sem munu nýtast okkur vel,\" sagði Ian Dowie, stjóri QPR um leikmanninn.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.