28.06.08 - 11:06
Magnús Már Einarsson
Hólmar Örn til West Ham (Staðfest)

Hólmar í leik gegn ÍA á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Hólmar í leik gegn ÍA á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Hólmar Örn Eyjólfsson, HK-ingurinn ungi og efnilegi, komst í gær að samkomulagi við West Ham og á þriðjudaginn mun hann skrifa undir þriggja ára samning við félagið, með möguleika á framlengingu til tveggja ára.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar kemur fram að West Ham og HK hafi komist að samkomulagi um kaupverð fyrir nokkru síðan. Einnig herma heimildir Morgunblaðsins að upphæðin sé ein sú hæsta sem greidd hefur verið til íslensks félags fyrir leikmann.
Hólmar Örn, sem verður átján ára á þessu ári, fór í febrúar til West Ham á reynslu þar sem hann æfði með aðalliði félagsins og stóð sig vel. Hann mun æfa með aðalliði West Ham þegar hann kemur til félagsins.
,,Ég fer beint að æfa með aðalliðinu og svo er framhaldið bara undir mér sjálfum komið en ég fer og geri mitt besta,“ sagði Hólmar við Morgunblaðið í gær.
Á síðasta ári steig Hólmar sín fyrstu skref með meistaraflokki HK og lék tólf leiki í Landsbankadeildinni, alla í byrjunarliði.
Á þessari leiktíð hefur hann leikið alla átta leiki HK í Landsbankadeildinni en Hólmar hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

Heimild: Morgunblaðið