28.06.08 - 20:14
Magnús Már Einarsson
Páll Einarsson tekinn við Hvöt (Staðfest)

Páll eftir bikarleikinn gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Gamla kempan Páll Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari Hvöt sem leikur í annarri deild.
Kristján Óli Sigurðsson hætti hjá Hvöt fyrir tveimur vikum síðan og nú hefur Páll tekið við liðinu út tímabilið.
Páll og Eysteinn Pétur Lárusson stýrðu saman liði Hvatar gegn Fram í Visa-bikarnum og á mánudagskvöldið stýrði Páll liðinu einnig gegn Tindastól.
Hann hefur núna tekið alfarið við og stýrði Hvöt gegn Aftureldingu í annarri deildinni í dag.
Páll lagði skóna á hilluna síðastliðið haust eftir dvöl hjá Fylki en hann lék með Þrótti lengst af á sínum ferli.