28.06.11 - 14:37
Elvar Geir Magnússon
Magnús Páll Gunnarsson í Víking (Staðfest)

Magnús Páll Gunnarsson í leik með Breiðabliki 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingar hafa samið við sóknarmanninn Magnús Pál Gunnarsson en hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning við félagið samkvæmt frétt Vísis.
Félagaskiptaglugginn er þó lokaður og verður Magnús ekki löglegur fyrr en 15. júlí.
Víkingar hafa átt í krísu sóknarlega vegna meiðsla Helga Sigurðssonar og Björgólfs Takefusa og sárlega skort bit fram á við. Liðið hefur aðeins hlotið tvö stig í síðustu sex leikjum sínum og er í harðri fallbaráttu.
Magnús er 31 árs og sló í gegn með Breiðabliki sumarið 2007 en þá skoraði hann átta mörk og hirti bronsskóinn.
Í janúar 2009 samdi Magnús Páll við Wuppertaler en meiðsli settu strik í reikninginn þar og í kjölfarið fór hann til Hammer SVPG. Á nýliðnu tímabili spilaði Magnús síðan með SV Holzwickede þar sem hann skoraði 23 mörk í jafnmörgum leikjum.

Heimild: Vísir