Siggi Raggi: Upplifði að ég var orðinn einn í því stríði að halda honum
Auglýsing

Siggi Raggi á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Raggi og Marley Blair.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jordan Smylie.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sami Kamel er markahæstur í Keflavík með tvö mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Raggi á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum í brasi, samt ekki alslæmt, vorum að spila á móti vindi í fyrri hálfleik og fáum á okkur mark stuttu fyrir hálfleik. Það kom á erfiðum tíma, lélegt hjá okkur í dekkningunni. En Frans fannst mér einn í gegn (á 24. mínútu), fannst það ekki rangstaða og það er rosalega dýrt atvik að dómararnir séu með það vitlaust. Við komumst í góðar stöður en nýttum þessar stöður ofboðslega illa. Það vantar meiri gæði á sóknarþriðjungi okkar," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, eftir tap gegn KR í Bestu deildinni í kvöld.
Keflavík var með vindi í seinni hálfleik. Hefðu gestirnir ekki getað pressað KR-ingana hærra?
„Mér fannst við bara virka þreyttir, hvort það vantaði sjálfstraust í okkur eða orkustigið ekki alveg nógu hátt. Það var eitthvað sem var 'off', mér fannst við geta gert betur. Við fengum stöður en þá kom léleg sending, léleg móttaka eða röng ákvörðun. Það vantaði meiri gæði hjá okkur í það."
„En KR-ingar eru mjög góðir í því sem þeir gera og eru farnir að ná góðum úrslitum. Ég held að þeir verði í efri sex þegar mótið er búið. Þeir eru erfiðir heim að sækja."
Hann talar um að leit sé í gangi til að reyna styrkja liðið fram á við. „Það veitir ekki af því, við söknum líka mikið að hafa ekki Sami Kamel. Hann er okkar öflugasti sóknarmaður og er ennþá okkar markahæsti leikmaður, hefur ekki spilað síðan 7. maí, það segir svolítið."
Marley Blair og Jordan Smylie eru farnir til síns heima eftir að hafa verið fengnir til félagsins í vetur. Voru það mistök að taka þá inn í vetur?
„Eftir því hvernig maður lítur á það, auðvitað geturu sagt að það hafi verið mistök, þeir hafa ekki staðið undir þeim væntingum sem við gerum til erlendra leikmanna hjá okkur."
„Í tilviki Blair þá var hann afskaplega ódýr útlendingur, ég vonaðist til að geta unnið meira með varnarleikinn hans því hann hefur hæfileika sóknarlega; skoraði á móti Víkingi og er góður að fara á menn einn á einn. Ég upplifði að ég var orðinn einn í því stríði að halda honum, að það væru allir pirraðir, var ekki að verjast nógu vel fyrir liðið. Við þurfum allir að stefna í sömu átt og eins þurftum við að losa pening til að geta fengið inn þá vonandi sterkari og betri mann. Það er það sem við erum að vinna í."
„Með Smylie, þá meiðist hann stuttu fyrir mót, þarf að fara í aðgerð og er frá í 5 vikur, þyngdist svolítið og var ekki í sínu besta standi. Hann skoraði fullt af mörkum í næstefstu deild í Ástralíu, en var dálítið hrár, snertingarnar voru 'off' en 'effortið' var klárlega til staðar. En við teljum að við getum fengið inn betri leikmann inn fyrir þann pening sem hann var að fá hjá okkur."
Er eitthvað klárt fyrir opnun gluggans sem verður 18. júlí?
„Við erum komnir með nokkur nöfn á blað sem við myndum hafa áhuga á að fá. En svo verður stjórnin að segja hvað er til af peningum. Eins erum við opnir fyrir því að fá lánsmenn sem geta styrkt okkur. Við þurfum að brúa bilið. Við erum líka að vonast til að fá inn einhverja leikmenn; okkur vantar Nacho í dag, Sami Kamel, Stefan Ljubicic og Daníel Gylfason."
Gabríel Aron Sævarsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í kvöld. „Hann hefur nánast ekkert æft með okkur."
„Staðan er svona ef við lítum hreinskilið á það akkúrat núna. Við sendum nokkra á lán í neðri deildirnar, það er kannski enginn af þeim að sigra heiminn akkúrat núna, það er millibilsástand. Það er til lítið af peningum og þetta er bara þar sem við erum núna og KR-ingar eru betri en við akkúrat núna en verða það vonandi ekki endalaust."
Telur sig rétta manninn
Keflavík er í botnsæti deildarinnar og hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð. Er Siggi Raggi rétti maðurinn í að snúa hlutunum við í Keflavík?
„Já, ég er á því. Það er alltaf stjórnarinnar að ákveða hvort þeir vilja hafa mig eða hvort þeir treysti öðrum betur fyrir verkefninu. Þannig er starf þjálfarans."
Viðtalið er lengra og má sjá það í heild sinni í spilaranum efst