Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Ajax bannar Kristian Nökkva að æfa með aðalliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson og sex aðrir leikmenn Ajax mega ekki koma nálægt aðalliðinu frá og með morgundeginum en það er Telegraaf sem segir frá þessu í dag.

Alex Kroes, tæknilegur stjórnandi hjá Ajax, sendi leikmönnunum sjö skilaboð á dögunum og tilkynnti þeim þar að þeir væru ekki lengur velkomnir á æfingar með aðalliðinu.

Félagið ætlar að losa sig við þá í sumar til þess að hjálpa John Heitinga, nýjum þjálfara liðsins, að styrkja hópinn í sumar.

Telegraaf segir reglur Kroes ansi harðar. Þeir mega aðeins nota völlinn og ræktarsalinn eftir að aðalliðið hefur klárað hádegismat og mega þá ekki leggja bílum sínum á bílastæðin við æfingasvæðið.

Leikmennirnir fá aðeins afnot af einum sjúkraþjálfara.

Ástæðan fyrir þessu er að Francesco Farioli, fyrrum þjálfari liðsins, notaði allt of marga leikmenn á síðasta undirbúningstímabili og vill Ajax gera hlutina öðruvísi í ár.

Kristian Nökkvi er einn af þessum sjö leikmönnum, en hinir eru Chuba Akpom, Carlos Forbs, Jay Gorter, Borna Sosa, Christian Rasmussen og Branco van de Boomen.

Ajax telur sig geta fengið dágóða upphæð fyrir þá Akpom og Forbs, en aðeins minna fyrir hina leikmennina á listanum.

Mikill áhugi er á Kristian, sem eyddi síðasta tímabili á láni hjá Spörtu Rotterdam. Hann spilaði risastórt hlutverk í liði Ajax tímabilið 2023-2024 þar sem hann skoraði 10 mörk og gaf 3 stoðsendingar í 45 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner