Mónakó hefur tilkynnt komu franska miðjumannsins Paul Pogba en hann skrifaði undir samning til 2027.
Áhugamenn um fótbolta hafa lengi beðið eftir því að Pogba snúi aftur á völlinn.
Frakkinn var settur í bann í september árið 2023 fyrir brot á lyfjareglum og var hann dæmdur í mars 2024 í fjögurra ára bann frá fótbolta, en það bann var stytt í átján mánuði.
Í nóvember á síðasta ári rifti hann samningi sínum við ítalska félagið Juventus og fimm mánuðum síðar lauk banninu, en hann ákvað að bíða með að finna sér félag fram að sumri.
Á dögunum náði hann samkomulagi við Mónakó um kaup og kjör áður en hann stóðst læknisskoðun í dag. Um það bil klukkutíma síðar tilkynnti Mónakó að Pogba hefði gert tveggja ára samning við félagið.
Það er engum blöðum að fletta að Pogba, sem er 32 ára, er enn með svakaleg gæði. Hann fór í gegnum akademíuna hjá Le Havre og Manchester United áður en hann gekk í raðir Juventus á frjálsri sölu árið 2012.
Pogba stimplaði sig heldur betur inn hjá Juventus og var á mörgum listum yfir bestu miðjumenn heims á fjórum árum sínum þar áður en hann sneri aftur til Man Utd árið 2016 og varð heimsmeistari með Frökkum tveimur árum síðar.
Miðjumaðurinn fór aftur til Juventus árið 2022 en meiðsli og bann hans varð til þess að hann spilaði aðeins tólf leiki.
Nú vonast hann til að ganga í endurnýjun lífdaga hjá Mónakó, en hann mun um leið upplifa drauminn um að spila í efstu deild í heimalandinu.
We are delighted to announce the arrival of Paul Pogba ????????
— AS Monaco EN ???????? (@AS_Monaco_EN) June 28, 2025
The midfielder has signed a 2-season deal and is now tied to the Club until 30th June 2027 ???? pic.twitter.com/SJN33IZhzw
Athugasemdir