Franska félagið RC Strasbourg er þegar búið að kaupa þrjá leikmenn til sín í fyrri hluta sumargluggans og koma tveir þeirra frá enskum félagsliðum.
Strasbourg greiðir um 8 milljónir evra til að kaupa Andrew Omobamidele úr röðum Nottingham Forest, en hann lék með Strasbourg á láni á síðustu leiktíð.
Omobamidele er 23 ára gamall miðvörður sem leikur með írska landsliðinu. Hann kom við sögu í 15 leikjum með Forest áður en hann var lánaður til Strasbourg í fyrra. Þar áður lék Omobamidele fyrir Norwich í fjögur ár.
Samuel Amo-Ameyaw er þá einnig kominn til Strasbourg en hann er keyptur úr röðum Southampton, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Amo-Ameyaw er 18 ára kantmaður sem gerði flotta hluti á láni hjá Strasbourg á síðustu leiktíð. Hann verður 19 ára um miðjan júlí.
Strasbourg borgar um 7,5 milljónir evra til að kaupa Amo-Ameyaw, sem hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Englands. Hann á 42 leiki að baki fyrir U16 til U19 landsliðin.
Að lokum hefur senegalski miðjumaðurinn Pape Diop verið keyptur til félagsins úr röðum Zulte Waregem í Belgíu. Diop kostar 8 milljónir evra.
Diop var lykilmaður í liði Waregem sem sigraði B-deildina í Belgíu á síðustu leiktíð. Hann er 21 árs gamall og hefur spilað einn A-landsleik fyrir Senegal.
Strasbourg, sem er í eigu sömu aðila og Chelsea, endaði í sjöunda sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð til að tryggja sér sæti í Sambandsdeild Evrópu.
Athugasemdir