28.07.06 - 14:43
Hafliði Breiðfjörð
Magnús Ólafsson í Keflavík (Staðfest)

Mynd: umfn.is/fotboltinn

Mynd: umfn.is/fotboltinn
Framherjinn Magnús Ólafsson er kominn í Keflavík frá nágrannaliðinu í Njarðvík. Hann fékk félagaskipti yfir í dag og er því löglegur í næsta leik liðsins gegn Grindavík næstkomandi mánudag.
,,Hann kemur til að þétta æfingahópinn. Hann fékk fá tækifæri hjá Njarðvík og vildi skipta um umhverfi. Við hleyptum honum í það," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur í samtali við Fótbolta.net í dag.
Magnús hefur leikið með liðum eins og KR, Haukum, Víði, Reyni Sandgerði og fleirum. Hann var markahæstur í annari deild karla árið 2001 þegar að hann lék með Haukum með 24 mörk. Þaðan fór hann í KR árið eftir.