Fotbolti.net
28.07.06 - 15:04
Magnús Már Einarsson

Thompson til Portsmouth (Staðfest)

Thompson býður Tony Hibbert leikmanni Everton upp á flugferð.

Thompson býður Tony Hibbert leikmanni Everton upp á flugferð.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur gert eins árs samning við miðjumanninn David Thompson sem yfirgaf Wigan í lok síðasta tímabils.
Þessi 28 ára gamli leikmaður byrjaði fótboltaferilinn með Liverpool og lék 50 leiki með liðinu áður en hann fór til Coventry City árið 2000.

Eftir tvö ár hjá Coventry fór Thompson til Blackburn þar sem hann lék vel og vann sér meðal annars tvívegis sæti í enska landsliðinu. Hann byrjaði inni á í 64 leikjum hjá Blackburn áður en hann fór til Wigan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.