Fotbolti.net
28.07.06 - 20:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Bonera til Milan (Staðfest)

Bonera til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Milan hafa gengið frá kaupunum á ítalska varnarmanninum Daniele Bonera frá Parma og mun hann fylla skarð Jaap Stam sem fór til Ajax fyrr í sumar.
Bonera, sem er 25 ára gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning á San Siro en ekki var greint frá því hversu há upphæðin var sem Milan þurftu að borga fyrir hann.

Bonera er ítalskur landsliðsmaður en rétt svo missti af því að komast í 23 manna hóp Heimsmeistaranna þó að hann æfði með liðinu alveg fram að fyrsta leik mótsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.