Fotbolti.net
28.07.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Samuel Eto\'o til Inter Milan (Staðfest)

Samuel Eto\'o

Samuel Eto\'o

Canon

Mynd: Getty Images

Inter Milan á Ítalíu hefur gengið frá kaupunum á kamerúnska framherjanum Samuel Eto\'o sem kemur frá Barcelona.
Eto\'o, sem er 27 ára gamall kemur til félagsins í skiptum fyrir Zlatan Ibrahimovic, sem fór í hina áttina til Barcelona og auk þess borga Barcelona 40 milljónir evra fyrir sænska framherjann.

Eto\'o skrifaði undir fimm ára samning við Inter Milan í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun á San Matteo spítalanum í Mílanó í gærkvöld, en ásamt því kemur Aliaksandr Hleb á láni til félagsins út tímabilið.

,,Ég skráði mig í sögubækurnar hjá Barcelona, en þeirri sögu er lokið núna. Nú hefst saga mín hjá Inter á byrjunarreit. Ég vil nýtt ævintýri og vona ég að allt gengur vel,\" sagði Eto\'o.

,,Ég get ekki annað en óskað Ibrahimovc góðs gengis. Ég hef unnið mikið hjá Barcelona og vonast ég eftir því að gera hið sama í þessum litum, ef ekki meira. Ég lofa stuðningsmönnum Inter að ég muni vinna alla daga eins og ég hef alltaf gert,\" sagði hann að lokum.

Eto\'o spilaði 200 leiki fyrir Barcelona og skoraði í þeim 130 mörk, en hans besta tímabil fyrir félagið var á síðasta tímabili þegar hann afrekaði að skora 39 mörk í 49 leikjum, þar sem hann vann þrennuna með liðinu.

Hann hefur þá leikið 84 landsleik fyrir hönd Kamerún og skorað í þeim 39 mörk, en hann er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.