Fotbolti.net
28.07.09 - 13:00
Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson í Keflavík (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Frá undirskriftinni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn sterki Haraldur Freyr Guðmundsson er genginn í raðir Keflavíkur og leikur með liðinu út tímabilið en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi hjá félaginu nú eftir hádegið.
Haraldur gekk frá starfslokum við Apollon Limassol á Kýpur í byrjun júlí en félagið á í fjárhagskröggum og ný stjórn leitaðist eftir því að semja við hann og aðra leikmenn félagsins um að rifta samningum.

Haraldur átti góðan tíma Apollon Limassol eftir að hann kom þangað um áramótin og átti fast sæti í liðinu. Hann er kominn í hóp 10-12 leikmanna sem yfirgáfu félagið en meðal þeirra er líka fyrirliði liðsins.

Hann fór á reynslu hjá SønderjyskE fyrir um viku síðan en ákvað svo að ganga til liðs við uppeldisfélag sitt, Keflavík, og leika með þeim út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.