Fotbolti.net
28.07.09 - 15:01
Magnús Már Einarsson

Fernando Morientes til Marseille (Staðfest)

Fernando Morientes til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski framherjinn Fernando Morientes hefur gengið í raðir Olympique Marseille í Frakklandi.
Morientes, sem er 33 ára, var án félags eftir að hafa yfirgefið Valencia og því kemur hann frítt til Marseille.

Didier Deschamps, þjálfari Marseille, þjálfaði Morientes þegar að hann var í láni hjá Monaco tímabilið 2003/2004 en liðið komst þá í úrslit Meistaradeildarinnar.

,,Didier hringdi í mig á miðvikudaginn og við náðum strax saman, jafnvel þó að ég hefði annað tilboð,\" sagði Morientes þegar að hann var kynntur til sögunnar á fréttamannafundi í dag.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.