28.07.09 - 16:20
Magnús Már Einarsson
Alexander Veigar og Benis Krasniqi í Reyni S. (Staðfest)

Alexander Veigar Þórarinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Benis Krasniqi skorar mark gegn Reyni fyrr í sumar.

Mynd: Jón Örvar Arason

Reynir Sandgerði hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í 2.deildinni en félagið hefur krækt í Alexander Veigar Þórarinsson og Benis Krasniqi. Guðmundur Skúlason framkvæmdastjóri Reynis staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Alexander Veigar, sem er tvítugur miðjumaður, kemur á láni frá Fram en hann hefur fengið fá tækifæri með Safamýrarliðinu í sumar.
Alexander er uppalinn hjá Grindavík en hann gekk í raðir Fram síðastliðið haust.
Hann hefur aðeins leikið fjóra leiki í sumar og var ekki í leikmannahópi Fram gegn Fylki í gærkvöldi.
Benis kom til Íslands í fyrrasumar og ætlaði að ganga í raðir HK en félagaskiptin náðu ekki í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Í kjölfarið fór Benis í HK þar sem hann hafði stutt stopp áður en hann gekk í raðir KS/Leifturs í vor.
Hjá KS/Leiftri hefur hann skorað sjö mörk í tólf leikjum í deild og bikar í sumar.
Leikmennirnir munu báðir styrkja Reyni en liðið er með þriggja stiga forskot á toppnum í 2.deildinni.
Næsti leikur liðsins er gegn Magna á útivelli á morgun en báðir leikmennirnir ættu að geta leikið með liðinu í þeim leik.