28.07.11 - 10:30
Mist Rúnarsdóttir
Olga í KR (Staðfest)

Olga Kristina ásamt nýja þjálfara sínum, Björgvini Karli Gunnarssyni

Mynd: www.kr.is

KR hefur fengið liðsstyrk en Olga Kristina Hansen, landsliðskona Færeyja, hefur gengið til liðs við Vesturbæjarliðið.
Olga, sem er miðjumaður, hefur leikið með Álftanesi í sumar og skorað eitt mark í átta leikjum.
Hún á að baki 21 landsleik með landsliði Færeyja og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hún lék með AB í færeysku deildinni í fyrra og skoraði þá 26 mörk í 20 leikjum.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Olga smellur inn í KR-liðið sem er komið í bullandi fallbaráttu í Pepsi-deild kvenna.

Heimild: Heimasíða KR