28.07.11 - 17:09
Elvar Geir Magnússon
Skúli Jónsson og Stefán Kári í KV (Staðfest)

Skúli Jónsson í búningi Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skúli Jónsson í búningi Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV sem leikur í 3. deild hefur fengið til liðs við sig þá Skúla Jónsson og Stefán Kára Sveinbjörnsson.
Skúli er fæddur 1988 og er uppalinn í KR en lék lengst af með Þrótti. Hann á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands og getur leikið á miðju og í sókn.
Stefán Kári Sveinbjörnsson er miðjumaður fæddur árið 1986. Stefán er uppalinn í Víkingi og lék þar stórt hlutverk á árunum 2006-2008. Stefán hefur verið að jafna sig af meiðslum en kemur til með að styrkja Vesturbæinga í baráttunni um sæti í 2. deild.
Fyrr í mánuðnum fékk KV Davíð Birgisson frá Haukum.
KV er á toppi síns riðils í 3. deildinni en baráttan um sæti í úrslitakeppninni er ströng.