Fotbolti.net
28.08.06 - 15:47
Magnús Már Einarsson

Kezman til Fenerbache (Staðfest)

Kezman til Fenerbache (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska liðið Fenerbahce hefur gengið frá kaupunum á Mateja Kezman framherja Atletico Madrid og hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið.
,,Ég er hér til að vinna marga titla og skora mörg mörk. Ég held að þeir hafi mikil gæði og með þjálfara eins og Zico höfum við burði til að vinna mikið," sagði Kezman á blaðamannafundi en þessi 27 ára gamli leikmaður var aðeins ár í herbúðum Atletico þar sem hann kom frá Chelsea.

Kezman skoraði 105 mörk í 123 leikjum fyrir PSV Eindhoven í Hollandi á sínum tíma en hann náði sér ekki á strik hjá Chelsea og skoraði fjögur mörk á því eina tímabili sem hann var með félaginu.

Það sama var uppi teningnum hjá Atletico þar sem hann náði sér ekki alveg nógu vel á strik en hann skoraði þó átta mörk í 30 leikjum í fyrra. Hann meiddist á hné síðastliðið vor og náði sér ekki á strik á HM sem þýddi að hann hefur nú misst sæti sitt í serbneska landsliðinu.

Atletico keypti framherjana Sergio Aguero og Mista í sumar og því varð minna pláss fyrir Kezman.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.