28.08.06 - 17:15
Hafliði Breiðfjörð
Roy Keane ráðinn knattspyrnustjóri Sunderland (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Roy Keane hefur skrifað formlega undir samning um að verða næsti knattspyrnustjóri Sunderland en hann gerir þriggja ára samning við félagið og tekur við starfinu af Niall Quinn sem nú mun einbeita sér að því að vera formaður félagsins.
Þá var einnig staðfest í dag að Tony Loughlan muni verða yfirþjálfari undir Keane en ekki Brian Kidd eins og fréttir höfðu borist af. Keane var í áhorfendastúkunni hjá Sunderland um helgina er liðið mætti WBA í deildinni og virtist það hafa tilætluð áhrif því liðið vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu.
Keane veitti þá eiginhandaráritanir og virtist öllum ljóst að orðrómurinn um að hann væri að koma og taka við liðinu væri sannur. Hann var tilkynntur fyrir leikmönnum Sunderland í gær.
Keane veitti þá eiginhandaráritanir og virtist öllum ljóst að orðrómurinn um að hann væri að koma og taka við liðinu væri sannur. Hann var tilkynntur fyrir leikmönnum Sunderland í gær.
