Fotbolti.net
28.08.09 - 11:34
Magnús Már Einarsson

Arjen Robben til Bayern (Staðfest)

Arjen Robben til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska stórliðið FC Bayern hefur keypt Arjen Robben frá Real Madrid en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Robben er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning við Bayern.

Hann mun fá treyju númer 10 hjá félaginu en landi hans Roy Makaay lék síðast í þeirri treyju.

Robben mun hoppa beint inn í leikmannahóp Bayern fyrir stórleikinn gegn Þýskalandsmeisturunum í Wolfsburg á morgun.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.