Fotbolti.net
28.08.09 - 12:32
Gunnar Gunnarsson

Sylvain Distin til Everton frá Portsmouth (Staðfest)

Syvain Distin mun ef til vill verða í byrjunarliði Everton gegn Wigan um helgina.

Syvain Distin mun ef til vill verða í byrjunarliði Everton gegn Wigan um helgina.

Canon

Mynd: Getty Images

Sylvain Distin er genginn til liðs við Everton eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu. Franski miðvörðurinn hefur skrifað undir þriggja ára samning en kaupverðið er ekki gefið upp.
Distin er þar með enn eitt stóra nafnið sem yfirgefur Portsmouth í sumar en Peter Crouch og Glen Johnson höfðu áður verið seldir.

Everton staðfestu þessi félagsskipti í morgun á opinberri heimasíðu sinni og ljóst að Distin kemur til með að fylla skarð Joleon Lescott sem náði loks markmiði sínu að ganga til liðs við Manchester City í vikunni.

Sylvain Distin hafði verið orðaður við Aston Villa en nú hafa forráðamenn Birmingham félagsins snúið sér að Richard Dunne fyrirliða Man. City og eru taldir líklegir til að landa honum áður en lokað verður fyrir leikmannamarkaðinn á mánudaginn.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.