Fotbolti.net
28.08.09 - 14:10
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Wesley Sneijder til Inter (Staðfest)

Wesley Sneijder til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur keypt Wesley Sneijder frá Real Madrid en talið er að kaupverðið hljóði upp á 15 milljónir evra.
Sneijder er búinn að standast læknisskoðun hjá Ítalíumeisturunum og skrifa undir fjögurra ára samning.

Jose Mourinho, þjálfari Inter, hefur verið í leit að skapandi miðjumanni en honum mistókst að fá Deco frá Chelsea fyrr í sumar.

Þeirri leit er núna lokið en Sneijder gæti leikið sinn fyrsta leik með Inter þegar að liðið mætir AC Milan í grannaslag annað kvöld.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.