28.08.09 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Michael Brown til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur keypt miðjumanninn Michael Brown frá Wigan Athletic.
Brown hefur gert tveggja ára samning við Wigan með möguleika á einu ári í viðbót.
Þessi 32 ára gamli leikmaður mun væntanlega hoppa beint inn í leikmannahóp Portsmouth fyrir leikinn gegn Manchester City á sunnudaginn.
,,Michael er leikmaður sem hefur sýnt að hann getur staðið sig í þessari deild,\" sagði Paul Hart stjóri Portsmouth.
,,Þegar að hann var að spila hjá Sheffield United og ég var hjá Nottingham Forest þá var hann leikmaður sem þú vildir ekki mæta.\"

Heimild: Sky