28.08.09 - 22:15
Þórður Már Sigfússon
Kjartan Henry Finnbogason til Falkirk (Staðfest)

Kjartan Henry Finnbogason (lengst til vinstri)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Kjartan Henry Finnbogason hefur skrifað undir þriggja mánaða lánssamning við skoska úrvalsdeildarliðið Falkirk. Þetta kemur fram á heimasíðu skoska liðsins í kvöld.
Kjartan hefur lítið fengið að spreyta sig með norska liðinu Sandefjord í sumar og hefur ekki farið leynt með þá ósk sína að reyna fyrir sér annarsstaðar.
Falkirk hefur samið um forkaupsrétt á honum að lánstímabilinu loknu en vegna félagaskiptareglna í Noregi var ekki unnt að gera lengri samning við leikmanninn.
Forráðamenn Falkirk hrifust mjög af Kjartani þegar hann var til reynslu hjá félaginu fyrir stuttu og skoraði hann m.a. í æfingaleik fyrir liðið. Því var kappkostað að fá hann til félagsins og var gengið frá samningnum eftir að hann stóðst læknisskoðun í dag.

Heimild: Heimasíða Falkirk