28.08.10 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Carlos Salcido til Fulham (Staðfest)

Carlos Salcido í baráttunni við Lionel Messi á HM 2006

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið til sín mexíkóska vinstri bakvörðinn Carlos Salcido frá PSV Eindhoven í Hollandi.
Salcido, sem er 30 ára gamall hefur samþykkt þriggja ára samning við Fulham þar sem kaupverðið er talið vera 1,6 milljónir punda.
Hann átti gott mót með Mexíkó á HM í Suður-Afríku í sumar þar sem hann lék alla fjóra leiki liðsins og hefur verið eftirsóttur síðan þá.
Þetta þýðir væntanlega það að Paul Konchesky sem hefur leikið undanfarið með Fulham í vinstri bakvarðarstöðunni sé á leið til Liverpool á næstu dögum þar sem aðeins á eftir að semja um kaup og kjör.

Heimild: BBC