28.08.10 - 08:17
Brynjar Ingi Erluson
Blackpool fær Luke Varney að láni frá Derby (Staðfest)

Luke Varney

Mynd: Getty Images

Luke Varney

Mynd: Getty Images
Nýliðar Blackpool í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið sóknarmanninn Luke Varney að láni frá Derby út tímabilið.
Varney, sem er 27 ára gamall, var á láni hjá Sheffield Wednesday á síðasta tímabili þar sem hann skoraði níu mörk í Championship deildinni.
Undanfarin tvö ár hefur hann einungis spilað 10 leiki með Derby, en nú virðist hann hafa fengið gullið tækifæri til að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni þar sem Ian Holloway stjóri Blackpool hefur mikla trú á honum.
Blackpool tryggði sér kaupréttinn á Varney og getur því keypt leikmanninn hvenær sem er á meðan láninu stendur. Varney gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Blackpool mætir Fulham á morgun.

Heimild: BBC