28.08.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Legrottaglie frítt til Catania (Staðfest)

Legrottaglie að fagna marki Juventus. ,,Jesús er sannleikurinn\" stendur á bolnum innan undir treyjunni.

Mynd: Getty Images

Nicola Legrottaglie, 34 ára gamall ítalskur miðvörður, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Calcio Catania sem leikur í A-deild á Ítalíu.
Legrottaglie var á síðasta tímabili hjá AC Milan en lék aðeins einn leik vegna meiðsla. Áður en hann fór til Milan var hann í átta ár hjá Juventus þar sem hann var í byrjunarliði liðsins nokkur tímabil í hjarta varnarinnar við hliðina á Giorgio Chiellini.

,,Ég er ánægður að leggja af stað í nýtt ævintýri og það er heiður að klæðast þessari treyju,\" sagði Legrottaglie eftir að hafa skrifað undir samninginn.
,,Ég vil þakka formanninum, Antonio Pulvirenti, og yfirmanni knattspyrnumála hjá Catania, Pietro Lo Monaco, fyrir að trúa á mig.
,,Ég sagði við Lo Monaco að ég væri einungis að skrifa undir því ég tryði því að þetta lið gæti gert stóra hluti, ég vildi vera partur af einhverju mikilvægu.
,,Ég þekki nú þegar Davide Lanzafame í liðinu og get ekki beðið eftir að kynnast restinni.\"
Catania endaði í 13. sæti á síðasta tímabili, tíu stigum frá fallsæti.