28.08.11 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sergio Romero til Sampdoria (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
AZ Alkmaar í Hollandi er búið að staðfesta að félagið hefur selt aðalmarkvörð sinn til Sampdoria í ítölsku B-deildinni á 3.5 milljónir evra.
Romero er 24 ára gamall og er talinn besti markvörður Argentínu þar sem hann var í byrjunarliði Argentínu á HM 2010 í Suður-Afríku og í Suður-Ameríkubikarnum í sumar.
Romero er 24 ára gamall og er talinn besti markvörður Argentínu þar sem hann var í byrjunarliði Argentínu á HM 2010 í Suður-Afríku og í Suður-Ameríkubikarnum í sumar.
Romero hefur spilað fjögur ár í Hollandi og átti tvö ár eftir af samning sínum. Á þessum tíma er hann búinn að vera lykilmaður hjá AZ sem tókst að vinna hollensku deildina og hollenska bikarinn.
