28.08.11 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Ulises Davila til Chelsea (Staðfest)

Davila með boltann í leik með Chivas á undirbúningstímabilinu.

Mynd: Getty Images

Chelsea tilkynnti á heimasíðu sinni í gær að félagið hefði tryggt sé þjónustu mexíkóska U20-landsliðsmannsins Ulises Davila sem kemur frá Chivas.
Davila skrifaði undir fimm ára samning en hann getur bæði spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður og framherji.

Hann spilaði með Mexíkó á heimsmeistaramóti U20-landsliða í sumar en liðið hafnaði í þriðja sæti mótsins.
Talsmaður Chelsea segir að félagið hafi lengi fylgst grannt með Davila og menn séu sannfærðir um að hann geti tekið þeim framförum sem þarf til að hann verði mikilvægur byrjunarliðsmaður hjá liðinu.
Hann fór í gegnum margrómað unglingastarf Chivas sem hefur skilað upp Javier Hernandez hjá Manchester United, Carlos Vela hjá Arsenal, Carlos Salcido hjá Fulham og mexíkóska landsliðsmanninum Omar Bravo.