Fotbolti.net
28.09.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Derby fær Fredrik Stoor á láni (Staðfest)

Derby fær Fredrik Stoor á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Derby hefur fengið sænska varnarmanninn Fredrik Stoor á láni frá Fulham í einn mánuð.
Stoor hefur fengið fá tækifæri hjá Fulham síðan að hann kom til félagsins frá Rosenborg síðastliðið sumar.

Þessi 25 ára gamli landsliðsmaður mun núna fá tækifæri til að spreyta sig hjá Derby.

,,Þetta er frábær samningur fyrir okkur og ég vil þakka Roy Hogdson og öllum hjá Fulham fyrir að leyfa okkur að fá hann á láni,\" sagði Nigel Clough stjóri Derby eftir að gengið var frá samningum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.