28.09.09 - 14:31
Magnús Már Einarsson
Ejub Purisevic tekur við Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ejub Purisevic hefur verið ráðinn þjálfari Víkings frá Ólafsvík en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Ejub er öllum hnútum kunnugur hjá Víkingi en hann stýrði liðinu frá 2003-2008 og á síðasta tímabili var hann að þjálfa yngri flokka félagsins auk þess sem hann var yfirmaður yfir knattspyrnusamstarfinu á Snæfellsnesi.
Síðastliðið haust tók Kristinn Guðbrandsson við af Ejub en hann fékk að taka pokann sinn í sumar. Darko Kavcic var í kjölfarið ráðinn þjálfari en hann náði ekki að bjarga Víkingi frá falli niður í aðra deild.
Ejub náði á sínum tíma aðdáunarverðum árangri með Víking en hann tók við liðinu fyrir sumarið 2003 og stýrði því til sigurs í þriðju deildinni.
Ári síðar var liðið í öðru sæti í annarri deild og liðið hélt sæti sínu í fyrstu deild í fjögur ár undir stjórn Ejub.

Heimild: Heimasíða Víkings