Fotbolti.net
28.09.09 - 15:54
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Már samdi við FH til þriggja ára (Staðfest)

Gunnar Már í leik með Fjölni í sumar.

Gunnar Már í leik með Fjölni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Már Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Íslandsmeistara FH en þetta staðfesti Pétur Stephensen framkvæmdastjóri félagsins við Fótbolta.net rétt í þessu.
Pétur sagði að FH-ingar bindi miklar vonir við Gunnar Már sem er fyrsti leikmaðurinn sem skiptir um félag hér á landi eftir að deildinni lauk síðastliðinn laugardag.

Gunnar Már Guðmundsson hefur alla sína tíð leikið með Fjölni og hefur verið aðalmaður liðsins undanfarin ár og meira að segja verið nefndur Herra Fjölnir.

Hann er 26 ára gamall hávaxinn leikmaður sem er mjög fjölhæfur. Hann hefur spilað allar stöður upp hrygginn hjá Fjölni, framherji, fremstur á miðjunni, djúpur á miðjunni og í nokkrum leikjum sem miðvörður.

Hann lék 21 leik fyrir Fjölni í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði í þeim fimm mörk. Hann var mikið orðaður við Crewe Alexandra í vetur en var áfram hjá Fjölni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.