Fotbolti.net
28.09.10 - 09:00
Fótbolti.net

Slúðurpakki úr íslenska boltanum

Hólmar Örn Rúnarsson er eftirsóttur.

Hólmar Örn Rúnarsson er eftirsóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þá er komið að fyrsta slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.

Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.

Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].


Breiðablik: Alfreð Finnbogason og Elfar Freyr Helgason gætu farið frá Blikum en áhugi er á þeim erlendis frá. Viktor Unnar Illugason gæti gengið til liðs við uppeldisfélag sitt og þá er Hörður Sveinsson framherji Keflvíkinga orðaður við Breiðablik sem og Guðmundur Þórarinsson sem er á förum frá Selfyssingum. Þá mun hinn ungi Hilmar Freyr Bjartþórsson úr Fjarðabyggð æfa með Blikum í vetur auk þess sem Andri Rúnar Bjarnason, markahæsti leikmaður 2.deildar, er að æfa með liðinu.

FH: FH-ingar eru líkt og Blikar að skoða efnilega stráka og Hafsteinn Briem, besti maður HK í sumar, hefur verið orðaður við Fimleikafélagið. Emil Pálsson, fyrirliði BÍ/Bolungarvíkur er búinn að semja við FH og Guðmundur Þórarinsson er orðaður við Hafnfirðinga. Hólmar Örn Rúnarsson, leikmaður Keflvíkinga, er á óskalista FH en Ásgeir Gunnar Ásgeirsson gæti aftur á móti verið á förum.

ÍBV: Ásgeir Þór Ingólfsson og Guðjón Pétur Lýðsson úr Haukum eru á óskalista Eyjamanna. Eyjamenn hafa einnig hug á að reyna að fá Atla Viðar Björnsson frá FH og Ian Jeffs frá Val auk þess sem félagið hefur augastað á Andra Júlíussyni hjá ÍA. Bjarni Hólm Aðalsteinsson er einnig orðaður við sitt gamla félag ÍBV. Ásgeir Aron Ásgeirsson gæti verið á förum sem og Eyþór Helgi Birgisson en lánssmningur hans frá HK er að renna út.

KR: Markvarðarstaðan virðist vera mesta spurningamerkið í Vesturbænum. Lars Ivar Moldskred gæti verið á förum og lánssamningurinn hjá Þórði Ingasyni er að renna út. Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram, hefur verið orðaður við KR sem og Árni Gautur Arason, Ingvar Kale og Eyjólfur Tómasson úr Leikni. Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, hefur einnig verið orðaður við KR-inga en Viktor Bjarki Arnarsson og Björgólfur Takefusa gætu verið á förum.

Fram: Framarar ætla að styrkja sig en lítið hefur þó heyrst af því hvaða skotmörk félagið hefur. Andri Fannar Stefánsson, miðjumaður KA, er þó á óskalistanum. Alexander Veigar Þórarinsson gæti aftur á móti verið á förum sem og Kristinn Ingi Halldórsson og varamarkvöðurinn Ögmundur Kristinsson.

Keflavík: Fjölmargir leikmenn Keflavíkur eru samningslausir og þónokkrar breytingar gætu orðið suður með sjó en mörg lið renna hýru auga til leikmanna liðsins. Keflvíkingar eru sjálfir sagðir vera á eftir Ian Jeffs, Ásgeiri Ingólfssyni sem og Kristni Björnssyni fyrirliða Njarðvikur.

Valur: Kristján Guðmundsson gæti reynt að fá Hólmar Örn Rúnarsson og Hörð Sveinsson frá sínu gamla félagi Keflavík. Kristján gæti einnig leitað til Færeyja eftir leikmönnum en hann þekkir vel þar eftir að hafa þjálfað HB undanfarið árið. Simun Samuelsen hefur líka verið orðaður við endurkomu til Íslands en það ku ekki á rökum reist

Stjarnan: Óvíst er hvort markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson verði áfram hjá Stjörnunni en hann er samningslaus. Ingvar Jónsson úr Njarðvík og Árni Gautur Arason hafa verið orðaðir við Garðbæinga. Brynjar Gauti Guðjónsson og Þorsteinn Már Ragnarsson, leikmenn Víkings Ólafsvíkur, eru einnig á óskalista Stjörnunnar. Arnar Már Björgvinsson, Baldvin Sturluson og Jóhann Laxdal eru að skoða sín mál og þeir gætu hugsað sér til hreyfings.

Fylkir: Fylkismenn ætla að styrkja leikmannahóp sinn. Gylfi Einarsson gæti komið til uppeldisfélagsins frá Noregi og þá eru Hólmar Örn Rúnarsson, Andri Fannar Stefánsson, Pétur Georg Markan, Árni Freyr Guðnason og Kristinn Björnsson úr Njarðvík einnig á óskalistanum.

Grindavík: Gilles Mbang Ondo er á förum og í hans stað vilja Grindvíkingar fá Hörð Sveinsson frá Keflavík. Hólmar Örn Rúnarsson og Árni Freyr Guðnason eru einnig á óskalistanum sem og Alexander Veigar Þórarinsson hjá Fram en hann er uppalinn hjá Grindavík.

Víkingur R.: Víkingar eru stórhuga fyrir næsta tímabil og nokkrir leikmenn hafa verið orðaðir við félagið. Bjarni Hólm Aðalsteinsson og Hólmar Örn úr Keflavík eru á óskalistanum sem og Atli Sveinn Þórarinsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Viktor Unnar Illugason og Fannar Þór Arnarsson hjá Leikni. Varnarmaðurinn reyndi Milos Glogovac gæti verið á förum en hann datt úr liðinu í sumar. Kjartan Dige Baldursson gæti einnig verið á förum.

Þór: Björn Hákon Sveinsson, markvörður Þórs, er farinn til Noregs og því er félagið í leit að markverði. Sandor Matus, markvörður KA, gæti skroppið yfir í þorpið og gengið til liðs við Þór. Árni Freyr Guðnason úr ÍR er á óskalistanum og Þórsararar vilja einnig fá Jóhann Þórhallsson og Andra Hjörvar Albertsson frá Fylki og Fjarðabyggð. Báðir eru þeir uppaldir Þórsarar en líklegt er þó að Jóhann verði áfram í Fylki. Óvíst er síðan hvort gamli refurinn Nenad Zivanovic taki annað tímabil með Þór.

Haukar: Einhverjar breytingar verða hjá Haukum en Ásgeir Þór Ingólfsson og Guðjón Pétur Lýðsson eru báðir á óskalistanum hjá félögum í úrvalsdeild. Pétur Ásbjörn Sæmundsson leikmaður Hauka er farinn að hugsa sér til hreyfings þar sem hann fékk fá tækifæri eftir 6.umferðina í úrvalsdeildinni. Sama má segja um Pétur Örn Gíslason sem hætti með Haukum seint á tímabilinu. Hann mun líklega fara í annað 1.deildarlið. Markvörðurinn Amir Mehica mun einnig fara en hann var ósáttur við að fá ekki að yfirgefa félagið í sumar.

Selfoss: Óvíst er hvort Guðmundur Benediktsson verði áfram við stjórnvölinn. Guðmundur Þórarinsson er á förum og bróðir hans Ingólfur gæti einnig verið á leið í annað félag. Þá hafa nokkur félög í Pepsi-deildinni áhuga á Jóni Daða Böðvarssyni.

Leiknir R.: Það er kappsmál hjá Leiknismönnum að krækja í framherja og Aron Már Smárason, sem skoraði grimmt með Fjarðabyggð í sumar, er á óskalistanum sem og Pape Mamadou Faye sem er án félags sem stendur. Fannar Þór Arnarsson og fleiri Leiknismenn eru eftirsóttir en félagið vonast til að halda sínum mönnum.

Fjölnir: Pétur Georg Markan vill reyna fyrir sér í efstu deild á nýjan leik og hann gæti farið frá Fjölni. Varnarmaðurinn Stanislav Vidakovic mun ekki koma aftur til Fjölnis en Ásgeir Aron Ásgeirsson gæti komið aftur til félagsins frá ÍBV. Þorsteinn V. Einarsson, markvörður ÍR, er einnig orðaður við uppeldisfélag sitt Fjölni.

ÍA: Reynir Leósson, varnamaður Vals, gæti gengið til liðs við sínu gömlu félaga á Akranesi. Jóhannes Harðarson gæti einnig verið á heimleið frá Noregi.

ÍR: Óvíst er hvort Guðlaugur Baldursson haldi áfram sem þjálfari en framtíð margra leikmanna gæti oltið á hvort hann haldi áfram eða ekki. Þá er óvíst með framtíð Árna Freys Guðnasonar en önnur félög hafa sýnt honum áhuga líkt og undanfarin ár.

Þróttur R.: Ekki er ljóst hvort Muamer Sadikovic og Milos Tanasic verði áfram hjá Þrótti og þá er Ingvar Þór Ólason að velta fyrir sér hvort skórnir eigi að fara upp á hillu eða ekki. Þróttarar hafa einnig sýnt áhuga á að fá Magnús Bernhard Gíslason framherja Gróttu.

HK: Hafsteinn Briem, Hólmbert Aron Friðjónsson og Hörður Árnason eru allir eftirsóttir og óvíst er hvort þeir verði áfram hjá HK á næsta tímabili.

KA: Þjálfaramál KA eru ennþá í óvissu og nokkur nöfn hafa verið nefnd í því samhengi. Bjarni Jóhannsson og Guðjón Þórðarson hafa verið orðaðir við starfið sem og Dragan Stojanovic sem stýrði síðast Þór/KA.

Grótta: Kristján Finnbogason mun að öllum líkindum leggja hanskana á hilluna og þá vill framherjinn Magnús Bernhard Gíslason leita á önnur mið.

Víkingur Ó.: Brynjar Gauti Guðjónsson og Þorsteinn Már Ragnarsson eru eftirsóttir og óvíst er hvort þeir verði áfram hjá Ólafsvíkingum. Þeir eru meðal annars á leið á reynslu á Norðurlöndunum. Víkingar vilja fá framherjann Guðmund Magnússon frá Fram en hann á ættir að rekja til Ólafsvíkur.

BÍ/Bolungarvík: Dalibor Nedic og Milan Krivokapic verða ekki áfram hjá BÍ/Bolungarvík og þá eru Andri Sigurjónsson og Pétur Runólfsson einnig á förum. Vestfirðingar vilja halda Jónmundi Grétarssyni sem fór á kostum síðari hluta sumars eftir að hann kom til félagsins frá Haukum. Þá hefur BÍ/Bolungarvík áhuga á að fá framherjann Pape Mamadou Faye og miðjumanninn Jóhann Benediktsson frá Fjarðabyggð.

Fjarðabyggð: Óráðið er hvort Heimir Þorsteinsson og Páll Guðlaugsson verði áfram við stjórnvölinn. Ef þeir verða ekki áfram hefur heyrst að Jón Páll Pálmason fyrrum þjálfari Hattar gæti tekið við. Sveinbjörn Jónasson gæti farið og þá er óvissa í kringum framtíð markvarðarins Srdjan Rajkovic.

Njarðvík: Kristinn Björnsson fyrirliði og Ingvar Jónsson markvörður eru líklega á förum en félög í efstu deild hafa sýnt þeim áhuga. Njarðvíkingar hafa áður sýnt áhuga á að fá Björn Bergmann Vilhjálmsson frá Víði og ekki er ólíklegt að félagið reyni að krækja í hann.

Völsungur. Lið úr efri deildum hafa sýnt nokkrum leikmönnum áhuga en Húsvíkingar vonast til að halda sínum mönnum og stefna á að komast upp í fyrstu deild næsta sumar.

Reynir: Gamla kempan Kjartan Másson gæti hætt sem þjálfari og þá er líklegt að Sinisa Valdimar Kekic og Óli Ívar Jónsson taki við keflinu. Jón Páll Pálmason hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna.

KS/Leiftur: Lárus Orri Sigurðsson á í viðræðum við KS/Leiftur um að taka við þjálfun liðsins en Róbert Haraldsson hætti sem þjálfari á dögunum.

Hamar: Kristinn Kristinsson fyrirliði Berserkja hefur verið orðaður við Hamar.
Guðmundur Þórarinsson er orðaður við Breiðablik og FH.

Guðmundur Þórarinsson er orðaður við Breiðablik og FH.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Guðjón Pétur er líklega á förum frá Haukum en hann er orðaður við ÍBV.

Guðjón Pétur er líklega á förum frá Haukum en hann er orðaður við ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Pétur Georg Markan vill komast í Pepsi-deildina að nýju.

Pétur Georg Markan vill komast í Pepsi-deildina að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafsteinn Briem gæti yfirgefið HK.

Hafsteinn Briem gæti yfirgefið HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Lárus Orri er orðaður við þjálfarastöðuna hjá KS/Leiftri.

Lárus Orri er orðaður við þjálfarastöðuna hjá KS/Leiftri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.