Fotbolti.net
28.09.10 - 19:29
Magnús Már Einarsson

Franck Queudrue til Lens (Staðfest)

Franck Queudrue til Lens (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Franck Queudrue hefur samið við Lens í heimalandi sínu Frakklandi.
Þessi 32 ára gamli leikmaður yfirgaf Birmingham í sumar og hann hefur verið án félags síðan þá.

Queudrue fór til Peterborough á reynslu og hætti síðan við að ganga í raðir gríska félagsins Panionios á síðustu stundu.

Celtic hafði einnig mikinn áhuga á að semja við Queudrue en hann ákvað að lokum að skrifa undir eins árs samning við Lens.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.