Fotbolti.net
28.09.10 - 16:32
Hafliði Breiðfjörð

Leifur Garðarsson áfram þjálfari Víkings (Staðfest)

Leifur Garðarsson áfram þjálfari Víkings (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Leifur Garðarsson þjálfar Víking áfram á næstu leiktíð en félagið sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem kom fram að hann hafi gert nýjan tveggja ára samning við félagið.

Undir stjórn Leifs vann Víkingur 1. deild karla í sumar og leikur því á meðal bestu liða á næstu leiktíð. Hann hafði tekið við liðinu haustið 2008.
Yfirlýsing Víkings
Knattspyrnudeild Víkings og Leifur Garðarsson þjálfari liðsins hafa gert nýjan samning sem gildir til tveggja ára.

Leifi hefur tekist, á tveimur árum í starfi, að koma Víkingum á meðal þeirra bestu á nýjan leik.

Víkingur lék síðast í efstu deild árið 2007 og fagna stuðningsmenn mjög þeim árangri sem nú hefur náðst með sigri í 1. deild.

Víkingar horfa björtum augum til framtíðar og stefna hátt á komandi árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.