Nökkvi Þeyr Þórisson, framherji KA, ristarbrotnaði í 4-2 útisigri liðsins gegn Gróttu í gær. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Nökkvi mun því ekki koma meira við sögu á tímabilinu en hann verður frá keppni í tvo til þrjá mánuði.
Hinn 21 árs gamli Nökkvi meiddist snemma leiks í gær eftir baráttu við Arnar Þór Helgason, varnarmann Gróttu.
Nökkvi ristarbrotnaði einnig fyrr á þessu tímabili og var þá frá keppni í langan tíma.
Nökkvi hefur skorað eitt mark í níu leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar en það kom gegn ÍA í fyrstu umferð.
Athugasemdir