28.10.09 - 18:41
Magnús Már Einarsson
Kjartan Andri í Leikni R. (Staðfest)

Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis og Kjartan Andri.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Leiknir R. hefur fengið framherjann Kjartan Andra Baldvinsson til liðs við sig frá Fylki.
Kjartan Andri skrifaði undir samning við Leikni í félagsheimili þeirra síðdegis í dag.
Kjartan Andri er uppalinn hjá Fylki en hann hefur leikið með liðinu allan sinn feril.
Í sumar skoraði Kjartan eitt mark í sautján leikjum í Pepsi-deildinni en í fyrra skoraði hann tvö mörk í fjórtán leikjum.
Kjartan er annar leikmaðurinn sem kemur til Leiknis í haust en um helgina fékk félagið vinstri bakvörðinn Gest Inga Harðarson til liðs við sig frá Aftureldingu.