Fotbolti.net
28.11.07 - 09:43
Magnús Már Einarsson

Paul Jewell ráðinn stjóri Derby (Staðfest)

Paul Jewell hefur tekið við Derby.

Paul Jewell hefur tekið við Derby.

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Jewell fyrrum stjóri Wigan hefur tekið við liði Derby County en hann tekur við liðinu af Billy Davies sem hætti á mánudaginn.
Derby hefur gengið afleitlega á tímabilinu en liðið er á botni ensku úrvalsdeildarinnar með einungis sex stig eftir fjórtán umferðir.

Paul Ince stjóri MK Dons hafði verið orðaður við stjórastöðuna hjá Derby en forráðamenn MK Dons gáfu honum ekki leyfi til að ræða við "hrútana."

Jewell, sem nú hefur tekið við, hætti með Wigan í lok síðasta tímabils og hefur síðan þá verið í fríi frá fótbolta.

Hann hafnaði tilboði um að gerast landsliðsþjálfari Íra á dögunum og þá hafnaði hann einnig tækifæri til að gerast stjóri Wigan að nýju eftir að Chris Hutchings var rekinn.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.