Fotbolti.net
28.11.07 - 20:00
Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki verður aðstoðarþjálfari FH (Staðfest)

Hættur með kvennalið Breiðabliks

Jörundur Áki Sveinsson.

Jörundur Áki Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki Sveinsson er hættur sem þjálfari Breiðabliks í Landsbankadeild kvenna og hefur tekið við starfi aðstoðarþjálfara FH. Þetta staðfesti Lúðvík Arnarsson varaformaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Ekki er ljóst hver tekur við liði Breiðabliks en Blikar hafa nú hafið leit að eftirmanni Jörundar Áka.

Hjá FH mun Jörundur Áki verða aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar með liðið en Heimir hafði verið aðstoðarþjálfari en tók við þjálfun liðsins eftir að Ólafur Jóhannesson hætti og hefur nú tekið við landsliði Íslands.

Jörundur Áki stýrði Breiðablik í Landsbankadeild kvenna nú í sumar eftir að hafa tekið við liðinu síðastliðið haust.

Hann var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni árin 1996-1997. Haustið 1997 tók hann við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna Breiðabliks og gegndi því starfi til ársins 2001 en þá tók hann við meistaraflokki karla hjá félaginu og var með hann til ársins 2003.

Jörundur var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fram leiktímabilið 2004 og var síðan aðalþjálfari meistaraflokks karla Stjörnunnar leiktímabilin 2005 og 2006.

Jörundur var aðalþjálfari A-landsliðs kvenna árin 2001-2002 og 2005-2006. Þá þjálfaði hann U-21 árs landslið kvenna árið 2000.

Jörundur hampaði Íslandsmeistaratitlinum með meistaraflokki kvenna hjá Breiðabliki árin 2000 og 2001 og varð einnig bikarmeistari með sama liði 1998 og 2000.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.