28.12.07 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Roy Hogdson ráðinn knattspyrnustjóri Fulham (Staðfest)

Roy Hodgson.

Mynd: Getty Images

Roy Hodgson.

Mynd: Getty Images
Fulham tilkynntu nú seinnipartinn að Roy Hodgson hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri liðsins en Hodgson hætti fyrr í vetur með landslið Finnlands og sagðist vera að fara til starfa hjá Inter Milan ef ekkert annað kæmi upp í hendurnar á honum.
Hogdson skrifaði undir langtíma samning við Fulham of hefur störf 30. desember en ekki kemur fram í tilkynningu félagsins hversu langur samningurinn er.
Ray Lewington mun stýra liðinu í leiknum gegn Birmingham í ensku úrvalsdeildinni á morgun en Lewington hefur stýrt liðinu upp á síðkastið eftir að Lawrie Sanchez var rekinn. Í kjölfarið tekur Hodgson svo við.
,,Ég er hæstánægður með að fá þetta tækifæri með Fulham. Eftir langar viðræður við formanninn og stjórnina er ég viss um að við getum komið félaginu á nýjan stað."
,,Ég er ákveðinn í því að við munum kokmst upp úr núverandi stöðu," sagði Hodgson á vefsíðu Fulham en liðið er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég skil að það verður áskorun en það er áskorun sem ég mun takast á við. Ég hlakka mikið til að hefja æfingar með liðinu á sunnudag og mun auðvitað verða á St Andrews á morgun til að horfa á mikilvægan leik gegn Birmingham City."
Hodgson sem er sextugur er líklega þekktastur fyrir að hafa komið landsliði Sviss á Heimsmeistaramótið 1994 og Evrópumótið 1996 en fyrir það hafði Sviss ekki komist á stórmót síðan 1960.
Hann hefur einnig þjálfað fjölda félagsliða eins og Malmö, Inter Milan, blackburn Rovers, Grasshoppers, FC Kaupmannahöfn, Viking og Udinese.
Hann stýrði síðast finnska landsliðinu frá 2006-2007 og náði ótrúlega góðum árangri með liðið sem var nálægt því að komast á Evrópumótið 2008 en mistókst á lokasprettinum.

Heimild: BBC | Vefsíða Fulham