28.12.11 - 21:05
Elvar Geir Magnússon
Víðir Þorvarðarson aftur í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Eyjafréttir - Júlíus Ingason

Mynd: Eyjafréttir - Júlíus Ingason
Hinn nítján ára Víðir Þorvarðarson er genginn aftur í raðir ÍBV en hann lék upp alla yngri flokka félagsins.
Fyrir sumarið 2009 gekk hann í raðir Stjörnunnar þar sem hann lék 18 leiki með meistaraflokki félagsins í deild og bikar og skoraði eitt mark.

Víðir skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV.
„Við viljum byggja upp gott lið til framtíðar og erum að taka inn unga leikmenn inn í hópinn. Nú vil ég bara að Eyjamenn fjölmenni á völlinn næsta sumar, styðji við þessa peyja sem ætla að gera alvöru atlögu að titlinum,“ segir Hannes Gústafson, í knattspyrnuráði ÍBV, við Eyjafréttir.