Fotbolti.net
29.01.05 - 05:01

Daribor Lazic í Leikni (Staðfest)

Stuðningsmenn Leiknis í skýjunum

Stuðningsmenn Leiknis í skýjunum

Canon
Leiknismenn hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna framundan í 2. deildinni því Darobir Lazic er genginn til liðs við félagið. Lazic þessi er 22 ára gamall Serbi og spilar á miðjunni.
Lazic spilaði með Stjörnunni síðasta sumar og skoraði meðal annars mjög eftirminnilegt mark beint úr aukaspyrnu gegn Milton Keynes Dons FC (áður Wimbledon). Hann kom með Mihajlo Bibercic til landsins en Bibercic hélt síðan heim á leið og lék ekki með Stjörnunni síðasta sumar.

Lazic er góður styrkur fyrir Leiknismenn sem voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 1. deildinni á síðasta ári en þeir ætla sér væntanlega að komast þangað á komandi sumri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.