29.01.05 - 12:22
Hafliði Breiðfjörð
Stig Töfting til Häcken (Staðfest)

Daninn Stig Töfting hefur gert samning við sænska 1. deildarfélagið Häcken um að leika með félaginu á næstu leiktíð. Töfting sem er 35 ára gamall lék með Bolton Wanderers í Englandi um tíma en hætti þar því hann þurfti að sitja af sér fangelsisdóm fyrir líkamsárás. Hann var nú síðast hjá AGF í Danmörku þaðan sem hann var rekinn fyrir slagsmál í jólagleði félagsins.
Í kjölfarið var hann orðaður við efstu deildarlið Fram hér á landi en þjálfari Fram, Ólafur H. Kristjánsson var aðstoðarþjálfari AGF.
Häcken eru nú á fullu í að styrkja leikmannahóp sinn og þannig æfði landsliðsmaðurinn Stefán Gíslason með liðinu fyrr í mánuðinum. Ekkert verður þó af því að hann gangi til liðs við félagið en sænski landsliðsmaðurinn Teddy Lucic gekk hinsvegar í raðir þeirra í desember.
Sænska deildin byrjar að rúlla í apríl.