29.01.05 - 18:46
Magnús Már Einarsson
Richardson til WBA (Staðfest)




WBA hefur fengið Kieran Richardson vinstri kantmann Manchester United að láni út tímabilið. Richardson sem er tvítugur hefur aðeins komið tvisvar inn á sem varamaður hjá Manchester United á þessu leiktímabili og því hefur hann verið lánaður til WBA sem er að berjast í neðri hlutanum í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég er klárlega ánægður með að fara á láni og fá einhverja reynslu. Ég vil einnig sjá hvað ég get gert því ég tel mig geta fært West Brom mikið" sagði Richardson.
